Við kveðjum taubleyjurnar endanlega og siglum á ný mið ⛵

þann Sep 17, 2025

Kæru vinir,

Nú er komið að lokakafla í fallegri sögu. Frá fyrsta degi hefur Cocobutts lagt hjarta og sál í að kynna fjölnota bleyjur og fylgihluti fyrir íslenskum fjölskyldum. Það hefur verið ótrúlegt ferðalag og við erum þakklát fyrir allan stuðninginn sem við höfum fengið frá ykkur.

En lífið tekur okkur stundum í óvæntar áttir og hvetur okkur til breytinga og framþróunar. Eftir mikla umhugsun erum við tilbúnar að sigla á ný mið. Næstu mánuði munum við leggja meiri áherslu á næturþjálfun, koppaþjálfun og fræðslu sem styrkir foreldra í hverju þrepi, ásamt nýjum og vönduðum vörum sem einfalda líf nútímaforeldra. 

Því höfum við  sett af stað kveðjuútsölu á öllum taubleyjum og fylgihlutum. Þetta er síðasta tækifærið til að eignast taubleyjutengdar vörur hjá okkur áður en við lokum þessum kafla endanlega. Við munum þó halda áfram með nýburableyjuleiguna okkar í óákveðinn tíma. 

👉 Skoðaðu kveðjuútsöluna hér

Takk fyrir að vera hluti af Cocobutts taubleyju fjölskyldunni og að taka þátt í að móta nýja framtíð með okkur. Þetta er aðeins upphafið af næsta kafla 💚

Kær kveðja,
Elín og Eva hjá Cocobutts