Einnota renningar - Bambus (100 blöð)
Vörulýsing
Einfaldaðu þér taubleyjulífið með einnota bambus renningum! Þessa renninga er hægt að þvo og nota aftur ef það hefur ekki komið kúkur í þá. Hleypur vökva vel í gegn, eru þunnir og mjúkir og hægt að nota til að verja bleyjuna fyrir Zinki.
Notkun
Þú setur renninginn einfaldlega ofan á taubleyjuna og þegar þú skiptir um bleyju þá tekuru renninginn frá og í flestum tilfellinum geturu hrist kúkinn í klósettið áður en þú hendir renningnum í ruslið. ATH! Það má ekki henda renningunum í klósettið.
Ef þú þarft að minnka renninginn þá er best að klippa hann til. Ekki brjóta hann saman í fleiri en eitt lag.
Passar á allar tegundir taubleyja.
Efni
Einstaklega mjúkur bambus.
Hægt að þvo og nota oftar en 1x svo lengi sem það fer ekki kúkur í renninginn.
Bambus brotnar niður á 2-12 mánuðum í landfyllingu.