Little Lamb

Einfaldur næturpakki með riflásum

Vörulýsing

Haltu barninu þínu þurru í 12+ tíma með einföldu riflásarkerfi. Næturkerfið frá Little Lamb er rakadrægt, dúnmjúkt og mjög einfalt til notkunar.

Afhverju næturbleyjur?

Börn eru yfirleitt lengur í næturbleyjunum, eða hátt upp í 12 tíma. Þær þurfa því að halda vel svo þær dugi nóttina. Fæstar dagbleyjur eru með slíka rakadrægni. Því mælum við með því að  fjölskyldur eigi næturbleyjur sem eru alltaf tilbúnar í slaginn fyrir nóttina. Enginn höfuðverkur og ekkert vesen um miðja nótt!

Frekari upplýsingar

Fitted bleyjur með riflás

Fitted bambus bleyjurnar frá Little Lamb fást í þremur mismunandi stærðum og eru  einstaklega rakadrægar. Sniðið á þeim er þægilegt til þess að vinna með og henta því næturvaktinni vel. 

Með hverri bleyju fylgir:
1x bambus búster (saumaður inn í fyrir stærð 2 og 3)
1x flísrenningur

Skeljar með riflás

Skeljarnar frá Little Lamb eru hannaðar til að passa fullkomlega utan um Fitted bleyjurnar frá sama merki en þær passa einnig vel yfir aðrar fitted bleyjur og prefolds.

Þar sem bæði fitted bleyjurnar og skeljarnar frá Little Lamb hafa teygjur við bak og læri þá heyra svokallaðar kúkasprengjur nánast sögunni til.

Skeljarnar koma í þremur stærðum og eru úr náttúrulega teygjanlegum bambus og mjúkofnu pólýefni. Í innanverðri bleyjunni er himna sem andar og hámarkar þannig loftflæði í gegnum efnið og heldur hitastiginu í lágmarki svo að barninu líði vel.

Skelin er einstaklega vel sniðin sem gerir það að verkum að hún heldur vætu og kúk þar sem það á að vera.

Eiginleikar


Notkunarleiðbeiningar

Efni

- Skeljarnar eru ofnæmisprófaðar og eiturefnalausar og falla undir ströngustu reglugerðir ReACH á vegum Evrópusambandsins um litarefni.
- Öll efnin sem notuð eru í skeljunum eru Oeko-tex Standard 100 vottuð.

Myndband



Um merkið

Little Lamb nappies er umhverfisvænt og vistvænt taubleyjumerki sem hefur verið á markaðnum í um 30 ár. Little Lamb framleiðir taubleyjur sem henta bæði dags- og nætur. Bambus fitted næturbleyjan er án efa þeirra vinsælasta vara.

11.970 kr 8.978 kr

Áætlaður afhendingartími milli desember 07 og desember 09.

Afhending
Ókeypis afhending innan Íslands á pöntunum yfir 15.000 kr. Sendingarkostnaður er sýndur í greiðsluferlinu og er reiknaður út frá þyngd.

Þó við leggjum okkur fram við að pakka rétt, geta mistök gerst. Við biðjum ykkur vinsamlegast að tilkynna um villur eða skort á pöntunum innan 14 daga frá móttöku. Ekki er hægt að krefjast skaðabóta vegna vöntunar eftir 14 daga.

Skil og skipti
Við bjóðum upp á að skipta um skoðun innan 3ja mánaða (90 daga). Vinsamlegast láttu okkur vita eins fljótt og auðið er á info@cocobutts.is ef þú vilt skila eða skipta einhverjum vörum í pöntuninni þinni.

Fyrir skil á vörum verða vörurnar að vera ónotaðar og í sama ástandi og þú fékkst þær í, þar á meðal óþvegnar. Við getum ekki tekið á móti vörum sem hafa verið þvegnar fyrir skil.

Ábyrgð
Framleiðsluábyrgð hjá framleiðendum vörumerkja Cocobutts er 6-12 mánuðir frá kaupdegi og er misjafnt eftir vörumerkjum, svo framarlega sem leiðbeiningar um umhirðu hefur verið fylgt.
Lestu meira

Deila

Customer Reviews

Based on 2 reviews
100%
(2)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
M
María R.B. (Reykjavik)
LANGBESTU næturbleyjurnar!

Einu bleyjurnar sem mér finnst ganga yfir alla nóttina! Hafa aldrei nokkurn tímann lekið og eru svo ótrúlega mjúkar og teygjanlegar, sem þýðir extra þægindi fyrir litla mann yfir nóttina <3

n
nafnlaust (Reykjavik)
Frábært næturcombó

Við erum mjög ánægð með þessar bleyjur og skel yfir. Endist alla nóttina og lekur aldrei!

11.970 kr 8.978 kr

Fyrir Jörðina

Hefðbundnar einnota nauðsynjavörur taka allt að 800 ár að brotna niður í náttúrunni og mörg tugi milljóna einnota nauðsynjavara eru urðuð á Íslandi á hverju ári með tilheyrandi afleiðingum á lífríki lands og sjávar.

Fyrir sparnaðinn

Með því að velja fjölnota sparar þú heilmikinn pening sem gæti nýst þér í eitthvað svo miklu skemmtilegra en einnota sorp.

Fyrir heilsuna

Einnota bleyjur, tíðabindi, túrtappar og aðrar einnota lekavörur innihalda flest kemísk efni sem hafa skaðleg áhrif á heilsu fólks og lífríki lands og sjávar bæði til skemmri og lengri tíma. Veldu betur fyrir þig og barnið þitt.